Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

fyndið myndband


Flottar myndir frá Svíþjóð!

Smile
 
Set inn nokkrar myndir sem ég fann á flakki mínu um netið. 
 
sweden-malmo
 
Wink
 
sweden1
 
Happy
 
pic-sweden-a-la-carte
 
Wink
 
tp_sweden
 
Geggjuð hús!Tounge
 
 hiking-arctic-sweden1
 
Happy
 
Sweden
 
Winkgeggjað!!!!
 
 sweden01
 
Góða helgi,,kv Adda Svíaprinsessa hehe... 

Tim Russert þáttastjórnandi Meet the Press hjá NBC látinn, 58 ár

Errm

russert.jpgEinn vinsælasti og áhrifamesti þáttastjórnandi í bandarísku sjónvarpi, Tim Russert, lést í dag.

Russert, sem var aðeins 58 ára gamall, féll saman við vinnu sína þegar hann var að raddsetja sjónvarpsefni á skrifstofum NBC fréttastofunnar í Washington, sem hann veitti einnig forstöðu.

Þaðan hefur vikulega verið sendur út hinn vikulegi fréttskýringa- og umræðuþáttur Russerts, Meet the Press.

Banamein Russerts var að líkindum hjartaáfall. Sjúkraliðum tókst að vekja hann til meðvitundar í stutta stund en hann virðist hafa látist á leiðinni í sjúkrabílnum á spítala eða við komuna þangað. Hann var nýkominn til vinnu úr sumarfríi með fjölskyldunni á Ítalíu.

“Fréttastofa NBC verður ekki söm án sterkrar og skýrrar raddar hans,” sagði Tom Brokaw, aðalfréttaþulur NBC til margra ára þegar hann minnstist Russerts og flutti frét NBC af láti hans í dag (sjá myndskeið hér að neðan).

Russert lætur eftir sig eiginkonu og uppkominn son.


Albínóum útrýmt í Tansaníu

Bandit

albinoar.jpgAlbínóar í Tansaníu lifa  við útskúfun í samfélaginu og eru þeir  hundeltir af glæpamönnum sem elta þá uppi og myrða þá. Víða í Afríku er talið að líkamsleifar albínóa búi yfir töframætti og töfralæknar vilja ólmir kaupa bein þeirra, hár og húð, en einnig eru líkamshlutar þeirra seldir einkaaðilum.

Salvator Rweyemamu, talsmaður ríkisstjórnari Tansaníu, segir í viðtali við New York Times að ríkisstjórnin sé uggandi vegna þessa máls.

Albínóar eru algengir í Afríku og eru samkvæmt New York Times einn af hverjum 3.000 íbúum þar en hins vegar aðeins einn af hverjum 20.000 manna í Bandaríkjunum.

Ungir albínóar eru eftirsóknarverðir af glæpamönnunum og í New York Times er haft eftir móður 17 ára albínóastúlku í Tanzaníu að henni hafi beinlínis verið slátrað af tveimur mömmun sem réðist inn á heimili þeirra.

Margir albínóar hafa leitað aðstoðar hjá “Tanzanian Albino Society”, sem getur þó lítið gert nema útdeila höttum og gleraugum til að vernda þá í sólinni.

Yfirvöld hafa þó gripið til aðgerða og eru að undirbúa að aka albínóbörnum undir vernd til og frá skóla. “Við höfum einnig tekið frá sæti í ríkisstjórninni fyrir albínóakonu til að sýna að við stöndum með þeim í þessari baráttu,” segir Salvator Rweyemamu.


Styttist í að Thomas fari á fæðingardeildina - ótrúlegar myndir

WhistlingW00t

thomas.jpg

Thomas Beatie, karlmaðurinn sem á von á barni eftir fjórar vikur, er í opinskáu viðtali í newsoftheworld þar sem hann lýsir tilhlökkun og eftirvæntingu sinni og eiginkonu sinnar Nancy. Þar eru líka birtar margar myndir af þungun Thomasar svo og fjölskyldumyndir, sem vert er að líta á.

Thomas er kominn 36 vikur á leið og er í sjöunda himni. Hann segist hugsa um það á hverjum degi að eftir fjórar vikur muni hann halda á dóttur sinni í fanginu.
Barnaherbergið er tilbúið og bleium hefur verið raðað upp.

“Við erum búin að velja nafn á hana en það er leyndarmál þangað til hún kemur í heiminn,” segir Thomas. “Fjölskyldur okkar og vinir hafa stutt okkur með ráð og dáð og okkur langar í fleiri börn,” segir Thomas, en þau hjón ætla ekki að taka ákvarðanir um frekari barneignir strax.

Thomas, sem er 34 ára gamall, stillti sér upp nöktum fyrir ljósmyndara þar sem meðal annars er mynd af honum að raka sig og hann  lætur handlegginn hvíla á bumbunni.

Myndir úr fortíðinni sýna breytinguna á honum frá því hann var fegurðardís á Hawai þangað til hann breyttist í þann mann sem hann er í dag.

Thomas fór í kynskiptaaðgerð en lét ekki fjarlægja eggjastokka og leg svo hann gæti eignast börn.
Hér er hægt að skoða myndir af Thomasi.


Norðmenn hafa áhyggjur af umskurði afrískra kvenna í landinu!

Frown

72563205.jpg Gambísk hjón hafa verið ákærð í Noregi fyrir limlestingu á kynfærum dætra sinna sem þau létu umskera í Gambíu. Á fjórum árum hafa um 500 konur leitað til sérstakrar deildar sem rekin er fyrir umskornar konur á norsku sjúkrahúsi.

Lögreglan í Noregi segist hins vegar fá tilkynningar reglulega um umskurð á stúlkum sem framkvæmdur er í Noregi. Í samfélagi fólks af afrískum uppruna í Osló hafa lengi heyrst áhyggjur af því að afrískar stúlkur sem fæðast og alast upp í Noregi séu umskornar í landinu. Konur, sem stunda umskurð á konum og eru búsettar í Bretlandi, Hollandi og Sómalíu, munu samkvæmt upplýsingum þessa fólks ferðast reglulega til Noregs í þeim tilgangi að gera slíkar aðgerðir.

“Það er full ástæða til að taka þessar raddir alvarlega,” segir á vg.no.

“Það streyma jafnt og þétt til okkar upplýsingar um umskurð í landinu,” segir Kristin Rohde, yfirmaður sérdeildar í lögreglunni.
“Við höfum líka heyrt að fólk innan okkar eigin heilbrigðisþjónustu stundi umskurð á konum, sem okkur þykir enn alvarlegra.”

Á sjúkrahúsinu í Ullevål er sérstök deild fyrir umskornar konur. Þar hefur verið umtalsverð aukning kvenna sem leita til deildarinnar, en í allt hafa 500 konur leitað til deildarinnar sem opnaði árið 2004.

Pinch

 


Veldi Opruh Winfrey að líða undir lok?

GetLost

78407970.jpgHún er kona sem getur selt bækur í milljónum eintaka, látið drauma rætast, og breytt lífum.

En getur það verið að Ameríka sé orðin þreytt á uppáhalds sjónvarpskonunni sinni, henni Opruh Winfrey?

Dagblaðið The New York Times segir að vinsældir Opruh fari stöðugt dalandi.

Á þessu ári minnkaði áhorf á spjallþáttinn hennar um sjö prósent, og er það þriðja árið í röð sem það hefur minnkað.

Dreifing tímaritsins hennar, O, The Oprah Magazine, hefur fallið um meira en tíu prósent síðasliðin þrjú ár, og nýlegur raunveruleikaþáttur sem hún framleiddi, Oprah’s Big Give, varð aldrei eins vinsæll og vonast var til.

Sagt er að stuðningur Opruh við Barack Obama sem hugsanlegan frambjóðanda til forsetakosninganna í Bandaríkjunum, hafi líka orðið til þess að hún tapaði mörgum aðdáendum sínum.

Áhorfshópur Opruh samanstendur helst af hvítum konum á miðjum aldri, sem flestar eru stuðningsmenn Hillary Clinton, og mörgum þeirra finnst Oprah hafa brugðist.

“Fyrir ekki svo löngu síðan var hún eins og páfinn,” segir Janice Beck, höfundur bókarinnar The Age of Oprah.

“Mörgum aðdáenda hennar, sem eru ekki demókratar, eða sem styðja Hillary Clinton, finnst hún hafa svikið sig.”

Það sem af er þessu ári hefur Oprah dregið sig í hlé frá herferð Obama, sem þýðir að hún hefur hugsanlega gert sér grein fyrir þeim neikvæðu áhrifum sem stuðningur hennar við hann gæti haft á ímynd hennar.


eurovision og fleira............

 
heil og sæl.
 
ég hef ekki verið í mjög miklu bloggstuði, og mig langar að þakka ykkur fyrir kveðjurnar í sambandi við skírnina hans Kristófers!Heart
 eurovision fílingur var hjá okkur fjölsk um síðustu helgi, og vorum við pínu sár yfir að komast ekki hærra í stigafjölda!DevilEn aðalmálið er að okkar hópur stóð sig með glæsibrag og voru okkur þjóðinni til sóma!Ég skelli herna inn fyrir ykkur mínu uppáhalds eurovision lagi, og njótið.
maður dillar sér með, þetta er æðislegt lag sem ég hlusta oft á.Ætla ekki að hafa þetta lengra, en þið heyrið frá mér um helgina.
knús og gellukveðjur frá ÖdduAlien.

Afmæli og skírn!Og myndir.....

hej alle i huppaSmile

 

sm_birthday_pooh

 

Minn elskulegi pabbi(tengdó) varð 60 ára þann 18 maí og óska ég honum innilega til hamingju með daginn.Sama dag bárum við Siggi minn litla manninn til skírnar, og hlaut hann nafnið Kristófer Örn Sigurðarson.Okkur fannst vel við hæfi að skíra hann á þessum merkisdegi, afa sínum til heiðurs!Amma hans hélt á honum undir skírn sem heppnaðist ofsalega vel, og mikið voru þau yndisleg samann Happy.Presturinn sem skírði Kristófer Örn heitir Hólmgrímur Bragason og er yndislegur prestur.Það voru teknar nokkrar myndir og mun ég setja inn smávegis sýnishorn af allri gleðinni.Mikið fann ég fyrir því hvað ég er rík að eiga þessi fallegu börn og yndæla fjölskyldu.

meira seinna kv Adda LaufeyInLove.

DSC00031

Kristófer að fá nafnið sitt, amma heldur á honum.

 

DSC00033

 

Erum við ekki sæt, amma mín og litli prinsinnHeart

DSC00041

Flottur hópurinn minn

DSC00018

Heart

DSC00061

M&P Í afmælinuHappyHeart

 


Yndislegt lag.

 
GÓÐA HELGI KÆRU LESENDUR!
 
ADDA 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband