Færsluflokkur: Bloggar

Sorglegt

þetta er ansi sorglegt ef satt reynist :(


mbl.is „Svívirðilegar ásakanir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðiegt ár elsku vinir!

kæru vinir og ættingjar!
 
óska ykkur öllum gleðiegs árs og vona að árið verði ykkur gott og gæfuríktWizard.ég er sátt við við árið sem er að líða, þó eftir sér sár söknuður eftir elsku ömmu minni.
 
nýárskveðjur frá öddu!
%C3%A1ram%C3%B3t

Amma mín kvaddi á sunnudag

elsku amma mín er látinn.BlushCryingFrown
 
hún lést á sjúkrahúsinu á akureyri sunnudaginn 15 des á yndislegasta tíma ársins.dauði hennar var líkn, eftir hörð og vægðarlaus veikindi, hún var tilbúinn í ferðina yfir heiðina.amma mín var mitt austur og vestur, ég er vissulega feginn að hún fékk  að fara, en eftir situr söknuður og sorg.
Ásta Baldvinsdóttir var fædd 14 apríl 1935 á Eiríkstöðum í skagafirði, hún ólst upp í sæmundarhlíð á dæli til fullorðinsára.Amma bar alltaf miklar taugar til Skagafjarðar og hun sagði mér mikið frá uppvexti sínum þar.
 
um leið og ég kveð þig elsku amma mín, með djúpu þakklæti og ást.takk fyrir að vera til í mínu lífi.við hittumst seinna. þín adda
 

Ó, vef mig vængjum þínum,
til verndar, Jesú, hér.
Og ljúfa hvíld mér ljáðu,
þótt lánið breyti sér.
Vert þú mér allt í öllu,
mín æðsta speki' og ráð,
og lát um lífs míns daga
mig lifa' af hreinni náð.

Tak burtu brot og syndir
með blóði, Jesú minn.
Og hreint mér gefðu hjarta
og helgan vilja þinn.
Mig geym í gæslu þinni,
mín gæti náð þín blíð,
að frið og hvíld mér færi
hin fagra næturtíð.


Lina Sandell - Berg / Magnús Runólfsson
 
kerti
 
ps.segi eins og rúnar júll"það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig"CryingHeart
HeartHeartHeartHeart
 
Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.

Davíð Stefánsson
Guðrún Böðvarsdóttir
Páll Ísólfsson
Sigvaldi Kaldalóns

 

Kristófer Örn er 1 árs í dag!

Photo 99
 
Þessi flotti prins er 1 árs í dag.Kristófer hefur stækkað og þroskast mikið síðustu vikur.Hann er líka alltaf að læra ný orð og hljóð.Hann elskar líka leikföng með hljóðum, stóra systir hans var þannig líkaHeart.
Elsku drengurinn okkar!innilega til hamingju með fyrsta afmælisdaginn.Við elskum þig alla leið til sólar og til baka.kv
Mamma pabbi & systkini.
birthday

Litil Saga

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn; " Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!"

Þeir gengu áfram þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri drukknaður, en var bjargað af vini sínum. Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein; "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKKNUN".

Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði: Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"! Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska hana, en HEILA ævi að gleyma henni.

„GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA - OG EIGÐU GÓÐAN DAG!“


Lykill stakkst inn í auga barns!

ótrúleg þessi frétt frá kentucky í usa.Litill drengur var að leika sér heima, þegar hann hrasar og dettur á lyklakippu foreldra sinnaW00t.sem betur fer slapp hann vel frá og skaðaðist ekki sjón hans.ég veit ekki hvað ég mundi gera ef þetta kæmi fyrir mín börnW00tUndecided.þetta sannar bara hina gömlu tilgátu að slysin gera ekki boð á undan sér, því miður.Gasp

mbl.is Bíllykill stakkst inn í augað á barni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hæ elskurnar,langt frá síðasta bloggi!

hæhæ elskurnar mínar Kissing

langt frá síðasta bloggi, bið ykkur að afsaka það allt samann............

En við höfum verið í vikufríi og erum stödd á norðurlandi, nánar tiltekið á íllugarstöðum í fnjóskadal.Tókum okkur bústað á leigu með heitum pott og höfum átt æðislegt frí, fékk að stelast í tölvu hjá vinarfólki sigga til að láta ykkur vita frá okkurHeart.Kristófer Örn fór í smá aðgerð síðasta mánudag og fékk rör í eyrun, en aðgerðin gékk ofsalega vel.hann stóð sig eins og hetja og grét voðalega litið.

mynd011.jpg
 hérna er litli prinsinn minn að vakna eftir svæfingunaWink
mynd010.jpg
hann er auðvitað fallegasti prins á þessari jörðHeart.
meira seinna kv adda

Jóakim og María eiga von á barni


mynd
Jóakim er hér ásamt foreldrum sínum og sonum frá fyrra hjónabandil.

 

Jóakim Danaprins og María prinsessa eiga von á sínu fyrsta barni. Í tilkynningu segir að María sé sett í byrjun maí, tæpu ári eftir að þau Jóakim og María gengu í það heilaga. Áður var Jóakim giftur AlexöndruManley frá Hong Kong. Þau skildu 2005. Jóakim og Alexandra eigunðust tvo syni.

 

ég óska þeim auðvitað innilega til hamingjuHappy


jólamyndir-forskot á jólahelgina =)

fann þessar fallegu myndir og vildi deila þeim með ykkurLoL.
 Christmas%20tree
 
christmas-tree-inside-the-house
christmas-night-magic-house
Merry_Christmas_1024
Christmas%20Tree

 

Blogg um börnin

ég stofnaði bloggsíðu fyrir krakkana inn á wordpress.com þar sem koma fréttir og myndir reglulega.ég á svo eftir að tengja það við barnalandsíðuna þeirra.Smile

síðuna má finna hér Heart

Þetta er sérstaklega gert fyrir ömmu og afa á Reyðarfirði, afa í útlöndum,og maddý frænku á akureyri.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband