Ekkert mál að drepa systurnar?

Dauðadómur í Íran: Grýta á 2 systur til dauða fyrir hjúskaparbrot

4102127_iran555.jpgHæstiréttur í Teheran í Íran hefur dæmt tvær systur til dauða fyrir hjúskaparbrot, að sögn lögmanns þeirra. Dauðarefsing liggur við framhjáhaldi í Íran og samkvæmt islömskum lagabókstaf þar er kveðið á um að fólk sé þá grýtt til dauða.

Æðsti klerkur dómsmála í Íran, Ayatollah Mahmoud Hashemi Shahroudi, afnam þó slíkar refsingar með sérstakri yfirlýsingu árið 2002. Það kom þó ekki í veg fyrir að maður sem hafði setið í 11 ár í fangelsi fyrir hjúskaparbort var grýttur til bana í þorpi í norðvestur Íran í fyrrasumar, sem vakti heimsathygli. Umræðan í kjölfarið kom í veg fyrir að konan sem líka hafði verið dæmd í sama máli væri grýtt til bana. Lagasetning frá 2003 virðist einnig hafa dregið úr gildi þessarar yfirlýsingar frá árinu áður.

Systurnar voru dæmdar til dauða á grundvelli myndbandsupptöku sem eiginmaður annarar þeirra hafði gert og sýndi þær í samskiptum við tvo menn á heimilinu meðan eiginmaðurinn var fjarstaddur. Þær heita Zohreh, 27 ára og Azar. Undirréttur í Teheran hafði dæmt þær til dauða með grýtingu.

Lögmaður þeirra, Jabbar Solati, segir í dag við dagblaðið Etemad, samkvæmt AFP frétt, að Deild 23 Hæstaréttar hefði nú staðfest þann dauðadóm.

Lögmaðurinn gerir líka þá athugasemd að búið hafi verið að dæma í þessu máli systranna áður. Þá var þeim gefið að sök að hafa átt í “ólöglegum samskiptum” og hlutu 99 vandarhögg í refsingu.

Solati segir að þó systurnar hafi játað að vera ámyndbandinu með mönnunum, þá sanni það samt sem áður ekki neitt því þar sjáist ekki neitt kynferðissamband milli fólksins. Lögmaðurinn ætlar að reyna að áfrýja niðurstöðunni til ríkissaksóknara.

Opinberar aftökur, mest hengingar, voru næstum 300 talsins í Íran á síðasta ári. Þeim hefur fjölgað að undanförnu í kjölfar herferðar stjórnvalda í öryggismálum.

Dómsmálayfirvöld ákváðu því 30. janúar síðastliðinn að framvegis þyrfti samþykki Ayatollah Mahmoud Hashemi Shahroudi fyrir öllum opinberum aftökum.

(Myndin of írönskum konum með fréttinni er ekki af viðkomandi systrum)

tekið af eyjan.is 

 

ég fékk hroll þegar ég las fréttina, hvar er réttlætið?af hverju er ekkert talað um karlkynið í þessu máliAngry.af hverju verða þeir ekki grýttir líka? Gasp


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

Þakka þér fyrir að endursegja þessa frétt.  Það má líka benda á að lögin sem Íran notast við kallast "sharía" þessi lög voru til þess að 15 ára stúlka var hengd í Iran ekki fyrir svo löngu. Bæði í DK  og UK eru Íslamistar farnir að biðja um að "sharía" löggjöfin verði samtvinnuð almennri löggjöf , sama er í gangi í Þýskalandi og Hollandi. 

Linda, 5.2.2008 kl. 01:18

2 identicon

Langaði bara að senda þér knús og kærleika....já þessi frétt er ekki í takt við okkar samfélag í dag og það er alveg óskiljanlegt að þetta skuli gerast og alveg hryllingur.Guð gefi ykkur góðan dag

Björk töffari (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 08:29

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta er óhuganrlegt og það er öruggt að hugsunarháttur má breytast þarna.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 7.2.2008 kl. 00:16

4 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Ógeðfellt mál og firra...Áður en við förum að grýta steinum (myndlíking) í átt að múslimum þætti mér gaman að vita hversu margar aftökur hafi átt sér stað í Bandaríkjunum á síðasta ári ??? Ætli þær séu mikið færri ??? Spurningin hlýtur að vera réttmæt og ber að íhuga áður en við skrifum allan skepnuskap á múslima....

Lárus Gabríel Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 01:16

5 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Vildi bara bæta við að þar sem við studdum stríðsbrölt kanans verður að segjast að við tilheyrum í ÞEIRRI GRÁÐU þeim menningarheimi....

Lárus Gabríel Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 01:17

6 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

ok, ég kannaði málið...ég spyr hver þarf að breyta hugsunarhætti sínum ??? Eru það bara múslimar ?  

Kíkið á listann......

USA Executions 2007 (as of 09/25/07) 2007 Overall Date Name State Method 1 1058 01/09/07 Corey Hamilton OK Lethal Injection 2 1059 01/10/07 Carlos Granados TX Lethal Injection 3 1060 01/17/07 Johnathan Moore TX Lethal Injection 4 1061 01/30/07 Chris. Swift TX Lethal Injection 5 1062 02/07/07 James Jackson TX Lethal Injection 6 1063 02/22/07 Newton Anderson TX Lethal Injection 7 1064 02/27/07 Donald Miller TX Lethal Injection 8 1065 03/06/07 Robert Perez TX Lethal Injection 9 1066 03/07/07 Joseph Nichols TX Lethal Injection 10 1067 03/20/07 Charles Nealy TX Lethal Injection 11 1068 03/28/07 Vin Gutierrez TX Lethal Injection 12 1069 03/29/07 Roy Pippin TX Lethal Injection 13 1070 04/11/07 James Clark TX Lethal Injection 14 1071 04/24/07 James Filiaggi OH Lethal Injection 15 1072 04/26/07 Ryan Dickson TX Lethal Injection 16 1073 05/03/07 Aaron Lee Jones AL Lethal Injection 17 1074 05/04/07 David Woods IN Lethal Injection 18 1075 05/09/07 Philip Workman TN Lethal Injection 19 1076 05/16/07 Charles Smith TX Lethal Injection 20 1077 05/22/07 Robert Comer AZ Lethal Injection 21 1078 05/24/07 Chris Newton OH Lethal Injection 22 1079 06/06/07 Michael Griffith TX Lethal Injection 23 1080 06/15/07 Michael Lambert IN Lethal Injection 24 1081 06/20/07 Lionell RodriguezTX Lethal Injection 25 1082 06/21/07 Gilberto Reyes TX Lethal Injection 26 1083 06/22/07 Calvin Shuler SC Lethal Injection 27 1084 06/26/07 Jimmy Bland OK Lethal Injection 28 1085 06/26/07 Patrick Knight TX Lethal Injection 29 1086 06/26/07 John Hightower GA Lethal Injection 30 1087 07/11/07 Elijah Page SD Lethal Injection 31 1088 07/24/07 Lonnie Johnson TX Lethal Injection 32 1089 07/26/07 Darrell Grayson AL Lethal Injection 33 1090 08/15/07 Kenneth Parr TX Lethal Injection 34 1091 08/21/07 Frank Welch OK Lethal Injection 35 1092 08/22/07 Johnny Conner TX Lethal Injection 36 1093 08/23/07 Luther Williams AL Lethal Injection 37 1094 08/28/07 DaRoyce Mosley TX Lethal Injection 38 1095 08/29/07 John Amador TX Lethal Injection 39 1096 09/05/07 Tony Roach TX Lethal Injection 40 1097 09/12/07 Daryl Holton TN Electrocution 41 1098 09/20/07 Clifford Kimmel TX Lethal Injection 42 1099 09/25/07 Michael Richard TX Lethal Injection

Methods of execution and numbers executed by that method in the USA are: electrocution (154), firing squad (2), gas chamber (11), hanging (3), and lethal injection (929).

Lárus Gabríel Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband