2008-09-29
Seðlabankinn er til skammar!
Þetta er til skammar hvernig seðlabankinn og aðrir stofnanir bregðast við efnahagsástandinu!Allt of seinnt í rassinn gripið.Stjórn seðlabankans ætti að segja af sér umsvifalaust og án tafar!!!Svo er starsfólk sumra bankastofnana enþá að mæla með myntkörfulánum,sem er bein ávísun á gjaldþrot.Það verður að bregðast við ástandinu NÚNA.
Óánægja meðal starfsfólks Glitnis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2008-09-26
yndislegt myndband með kristófer!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2008-09-22
Alzhimer er alvarlegt mál!
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
Pétur Þórarinsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2008-09-21
Bæn......
Drottinn er minn hirðir
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um réttan veg
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér.
Þú býrð mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi drottins bý ég langa ævi.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
23. Davíðssálmur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Umræða hefur verið í gangi um svokallaðar staðgöngumæður, en íslensk lög leyfa ekki að kona gangi með og ali barn, sem getið er af öðru fólki með tæknifrjóvgun, og láti barnið af hendi strax eftir fæðingu.
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir í Morgunblaðinu í dag að
Landlæknisembætið sé hlynnt því að möguleikinn verði skoðaður. Umræða um þessi mál eigi þó alveg eftir að fara fram hér á landi.
Matthías segir að hugmyndin um staðgöngumæðrun veki margar siðferðislega spurningar sem þurfi að skoða í kjölinn áður en slík meðganga yrði leyfð á Íslandi.
Staðgöngumæður þurfi mikinn undirbúning, bæði líkamlega og andlega, svo öllum sé ljóst að hverju þeir gangi.
Meðal þess sem hefur verið gagnrýnt er að ef greitt verður fyrir meðgöngu staðgöngumóður geti það orðið til þess að efnaminni konur gerist staðgöngumæður til að afla sér fjár.
Matthías varar við að meðganga megi ekki verða atvinnuvegur og telur því betra að staðgöngumæður séu nákomnar verðandi foreldrum.
Eðlilegt sé þó að greiða staðgögumóður vinnutap og kostnaðinn sem hlýst af því að vera staðgöngumóðir.
Mikil fyrirhöfn sé að ganga með barn og alltaf viss áhætta svo ástæða sé til að skilgreina í lögum hver eigi rétt á fæðingarorlofi, svo eitthvað sé nefnt, sé barn getið með aðstoð staðgöngumóður.
tekið af eyjan.is
hvað segir þú þetta kæri lesandi?Fróðlegt væri að fá þína umsögn um málið í atugasemdum á síðunni.Ég óska eftir málefnalegri umræðu án dónaskaps.
kv adda laufey
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fjögur störf sem ég hef unnið við. Aðstoðað í blómaverslun og bókabúð.Borið út blöð.Barnapössun,(hver hefur ekki passað börn hehe.
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á. Allar harry potter myndirnar-lord of the ring myndirnar-Blue Hawaii Mýrin er líka þrusugóð!
Fjórir staðir sem ég hef búið á.
Reykjavík
Akureyri
Danaveldi
Reyðarfjörður
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.
Big love-æðislegur þáttur sem var einu sinni á stöð 2
Sjálfstætt fólk
Kompás
Gettu betur á ruv.is
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
Danaveldi
thailand
Spánn
Grikkland
Fjórar síður sem ég skoða fyrir utan blog.is
ER.is
Eyjan.is
Visir.is
Siminn.is
Fernt sem ég held upp á matarkyns.
Grjónagrautur
Hræringur og slátur.
thai matur.
Folaldakjöt
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft.
Allar Öddubækurnar með tölu
Ljóðasafn Davíðs frá fagraskógi.
Ísfólkið.
Ljóðasafn Einars Ben
Fjórir bloggarar sem ég klukka.
Ég ætla að klukka Krissu!Valgeir!Dodda!Zeriaph!
Bestu kveðjur Adda klukkari hehe
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2008-09-05
Kjúklingabringur
Hér á bæ verður kjúlli í kvöldmatinn.Ég hef ekki ákveðið hvernig hann verður settur fram, en ákvað að deila með ykkur nokkrum uppskriftum sem ég fann á vafri mínu í dag.
Kjúklingabringur með kartöflusalati og ávöxtum
Hráefni
4 kjúklingabringur
1 msk sojasósa
1 msk ólífuolía
Kartöflusalat
600 g Kartöflur (kaldar og soðnar)
1 dós ananas (lítil)
100 g sýrður rjómi(10%)
2 tsk karrí
1/2 tsk natríummskert salt
1 tsk nýmalaður pipar
100 g vínber (blá)
2 sneiðar paprika (rauð)
Matreiðsla
Blandið saman ólífuolíu og sojasósu og penslið kjíklingabringurnar. Látið bíða á meðan kartöflusalatið er búið til. Grillið kjúklingabringurnar í 5-8 mínútur á hvorri hlið á heitu grillinu. Penslið með sojaolíunni.
Kartöflusalat
Hrærið saman sýrðan rjóma, karrí, salt og pipar og 1-2 matskeiðar af ananassafa. Skerið kartöflurnar í teninga og hrærið út í ásamt ananas í teningum. Raðið ananassneiðum, paprikusneiðum og vínberjum ofan á og til hliðar.
Berið grillaðar kjúklingabringurnar fram með kældu kartöflusalatinu og grófu brauði og e.t.v fersku salati.
Hráefni
Soðið kjúklingakjöt
1 lítill broccolihaus
Hálft franskbrauð
3 msk. sýrður rjómi
1 dós blaðlaukssmurostur
2 dl mjólk
3 bollar hrísgrjón
5 - 6 sveppir
Rifinn ostur
Matreiðsla
Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin. Á meðan að þau sjóða er hægt að skera niður sveppi og broccoli. Franskbrauðið má rífa niður í litla ferninga. Kjúklingakjötið, sem er best að hafa beinlaust, grænmetið og brauðið fer svo allt í eldfast mót sem að smurt er með sýrða rjómanum.
Mjólkin er hituð í potti og blaðlauksostinum bætt út í. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin má blanda þeim saman við kjúklinginn, brauðið og grænmetið og hella svo ostasósunni yfir.Rifna ostinum er svo stráð yfir og þetta sett inn í 180°C heitan ofn í 15-20 mínútur.
Þetta er ofsalega gott með fersku ávaxta- eða grænmetissalati.
Hráefni
1 kg. Skinnlaus beinlaus kjúklingur skorinn í strimla
2 laukar, skornir niður
2 msk olífuolía
3-4 hvítlauksrif pressuð
Safi af hálfri sítrónu
½ bolli hvítvín eða kjúklingasoð
1 dós (19 oz) maukaðir tómatar
1 msk oregano
Pipar eftir smekk
Matreiðsla
Mallið laukinn í olífuolíunni þangað til hann er glær. Bætið kjúklingnum útí og hristið pönnuna yfir miklum hita, þangað til hann hefur blandast vel saman við olíuna og laukinn. Bætið afganginum af hráefninu út í. Látið malla undir loki í 8- 10 mínutur. Berið fram með hrísgrjónum eða núðlum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2008-09-05
Al-Qaeda hóta dönum!!
Hópur sem nefnir sig Site og fylgist með íslömskum heimasíðum á netinu, segir hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa hótað árásum í Danmörku.
Við höfum áður varað Dani við og gerum það aftur núna, segir einn forystumanna samtakanna, Mustafa Abu al-Yazid, á myndbandi sem al-Qaeda birti á netinu.
Þjóðir sem eru í krossferð til að móðga og hæðast að spámönnum okkar og Kóraninum í fjölmiðlum, setjast að í löndum okkar, stela dýrgripum og drepa bræður okkar, kalla á hefnd, segir Abu al-Yazid.
Abu al-Yazid mun vera Egypti sem hefur verið valinn fjármálastjóri al-Qaeda .
Site segir myndbandið sent frá fjölmiðlasamtökum al-Qaeda.
Í myndbandinu sést sjálfsmorðsárásarmaðurinn sem réðst á danska sendiráðið í Islamabad og brot af sjálfri árásinni. Yazid segir þetta aðeins byrjunina ef Danir bæti ekki ráð sitt.
Ég vara tilbeiðendur krossins í Danmörku við, og heiti því að þetta er hvorki fyrsta né síðasta árás okkar á ykkur. Ef Allah þóknast munum við afmá ykkur af yfirborði jarðar, segir í myndbandinu.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framhaldsskólanemar og fjölskyldufólk sem veiktist af salmonellu á Rhodos vill bætur vegna veikindanna og lélegs aðbúnaðar á Rhodos, segir í Fréttablaðinu í dag.
Forstjóri Heimsferða segir ekkert á hreinu með orsök veikindanna en sóttvarnarlæknir á Íslandi rekur sýkinguna til hótelsins á Rhodos.
Einar Þórðarson, faðir drengs sem veiktist hastarlega af salmonellusýkingu á Rhodos í ágúst, segir verst að læknir skuli hafa greint skjúkdóminn rangt.
Sonurinn er einn af tíu piltum sem eru æskuvinir úr Grafarvogi, en þeir voru á Rhodos í ágúst síðastliðnum og dvöldust á hótelinu Forum Beach í fullu fæði, segir í Fréttablaðinu.
Fleiri Íslendingar á staðnum veiktust og fóru til læknis en fengu, að sögn Einars, þann úrskurð að þeir hefðu smitast af vírus og var gefð lyf samkvæmt því.
Eftir heimkomuna til Íslands 23. ágúst hafi komið í ljós að um salmonellusýkingu var að ræða.
Drengir í hópnum segja aðbúnað á Forum Beach fyrir neðan allar hellur. Hótelið hafi verið afar óþrifalegt og maturinn ólystugur.
Einar segir viðbrögð fararstjóranna hafi verið afneitun á því hversu ástandið var alvarlegt, en Tómas Gestsson, forstjóri Heimsferða, bendir á að fólkið geti hafa borðað annars staðar og að fjöldi annarra gesta á hótelinu hafi ekki veikst.
Tómas segist munu aðstoða farþega sína til að ná fram rétti sínum. Hann samþykkir þó ekki að starfsmenn Heimsferða hafi verið sinnulitlir.
Sem fyrr segir er þessi frétt úr Fréttablaðinu. Eyjan biður Fréttablaðið velvirðingar á að það hafi ekki komið nægilega skýrt fram.