Al-Qaeda hóta dönum!!

Frown

610x.jpgHópur sem nefnir sig Site og fylgist með íslömskum heimasíðum á netinu, segir hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa hótað árásum í Danmörku.

“Við höfum áður varað Dani við og gerum það aftur núna,” segir einn forystumanna samtakanna, Mustafa Abu al-Yazid, á myndbandi sem al-Qaeda birti á netinu.

“Þjóðir sem eru í krossferð til að móðga og hæðast að spámönnum okkar og Kóraninum í fjölmiðlum, setjast að í löndum okkar, stela dýrgripum og drepa bræður okkar, kalla á hefnd,” segir Abu al-Yazid.

Abu al-Yazid mun vera Egypti sem hefur verið valinn fjármálastjóri al-Qaeda .

Site segir myndbandið sent frá fjölmiðlasamtökum al-Qaeda.

Í myndbandinu sést sjálfsmorðsárásarmaðurinn sem réðst á danska sendiráðið í Islamabad og brot af sjálfri árásinni. Yazid segir þetta aðeins byrjunina ef Danir bæti ekki ráð sitt.

“Ég vara tilbeiðendur krossins í Danmörku við, og heiti því að þetta er hvorki fyrsta né síðasta árás okkar á ykkur. Ef Allah þóknast  munum við afmá ykkur af yfirborði jarðar,” segir í myndbandinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband