2008-09-05
Al-Qaeda hóta dönum!!
Hópur sem nefnir sig Site og fylgist með íslömskum heimasíðum á netinu, segir hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa hótað árásum í Danmörku.
Við höfum áður varað Dani við og gerum það aftur núna, segir einn forystumanna samtakanna, Mustafa Abu al-Yazid, á myndbandi sem al-Qaeda birti á netinu.
Þjóðir sem eru í krossferð til að móðga og hæðast að spámönnum okkar og Kóraninum í fjölmiðlum, setjast að í löndum okkar, stela dýrgripum og drepa bræður okkar, kalla á hefnd, segir Abu al-Yazid.
Abu al-Yazid mun vera Egypti sem hefur verið valinn fjármálastjóri al-Qaeda .
Site segir myndbandið sent frá fjölmiðlasamtökum al-Qaeda.
Í myndbandinu sést sjálfsmorðsárásarmaðurinn sem réðst á danska sendiráðið í Islamabad og brot af sjálfri árásinni. Yazid segir þetta aðeins byrjunina ef Danir bæti ekki ráð sitt.
Ég vara tilbeiðendur krossins í Danmörku við, og heiti því að þetta er hvorki fyrsta né síðasta árás okkar á ykkur. Ef Allah þóknast munum við afmá ykkur af yfirborði jarðar, segir í myndbandinu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.