2008-05-20
Afmæli og skírn!Og myndir.....
hej alle i huppa
Minn elskulegi pabbi(tengdó) varð 60 ára þann 18 maí og óska ég honum innilega til hamingju með daginn.Sama dag bárum við Siggi minn litla manninn til skírnar, og hlaut hann nafnið Kristófer Örn Sigurðarson.Okkur fannst vel við hæfi að skíra hann á þessum merkisdegi, afa sínum til heiðurs!Amma hans hélt á honum undir skírn sem heppnaðist ofsalega vel, og mikið voru þau yndisleg samann .Presturinn sem skírði Kristófer Örn heitir Hólmgrímur Bragason og er yndislegur prestur.Það voru teknar nokkrar myndir og mun ég setja inn smávegis sýnishorn af allri gleðinni.Mikið fann ég fyrir því hvað ég er rík að eiga þessi fallegu börn og yndæla fjölskyldu.
meira seinna kv Adda Laufey.
Kristófer að fá nafnið sitt, amma heldur á honum.
Erum við ekki sæt, amma mín og litli prinsinn
Flottur hópurinn minn
M&P Í afmælinu
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
H V A Ð ! ! ! ENGIN MYND AF YKKUR HJONUNUM SJALFUM ?????
ph (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 12:00
mamma mín.passaðu þrýstinginn aðeins
Adda bloggar, 20.5.2008 kl. 13:38
Til hamingju með tengdapabban og drenginn, hann Kristófer Örn.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.5.2008 kl. 17:38
Frábærar myndir og yndisleg börn. Til lukku með Pabba/tengdó og til lukku með skírnina ... knús á þig mín ljúfa og eigðu yndislegan dag.
Tiger, 20.5.2008 kl. 18:26
Til lukku með nafna minn! Hann er svoooo flottur
Knús Krissa
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 20.5.2008 kl. 19:14
Til hamingju með þetta allt *knús og klemm* Kveðja úr sveitinni.
JEG, 20.5.2008 kl. 19:16
Þú passar mig bara, það er alveg nóg fyrir okkur báðar. EN af hverju hefurðu PRESTANA á hliðinni, uss uss, ekki flott sona! það segir Rakkatið, Rölli á ekki að snúa svona, mamma láta hann snúa vitlaus, ekki flott. Myndin af þeim er alveg stórkostleg.kv.plh
PLH. (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 20:36
Elsku Adda ....til hamingju með þetta allt saman og það eru orð að sönnu að þú ert rík og átt yndisleg börn...knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 10:33
Til hamingju með fallegt nafn á prinsinum ykkar æðislegar myndir falleg börn
Brynja skordal, 21.5.2008 kl. 11:34
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæl Adda mín.
Innilega til hamingju með daginn. Mundu að ala yndislegu börnin þín upp í kristnum kærleika og vertu dugleg að biðja með þeim og kenna þeim bænir.
Guð blessi þig
Kær kveðja Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:13
þakka ykkur öllum fyrir góðar kveðjur
Adda bloggar, 22.5.2008 kl. 12:51
Hjartanlegar hamingjuóskir, en hvað hópurinn þinn er sætur, þú ert með fjögur kríli eins og ég, þannig að við vitum alveg hversu heppnar við erum (þó svo að stundum sé maður drulluþreyttur þá er maður alltaf heppinn). Til hamingju líka með pabba þinn, þetta hefur verið yndislegur dagur á allan hátt. Knús frá San Jose, Kaliforníu, hafðu það gott!!
Bertha Sigmundsdóttir, 27.5.2008 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.