LÍF

Líf

Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég


Óskadraumur -ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár
 
Photo 4

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð. Á þetta fallega barn heima á nýja Reyðarfirði sem minnir mig ekki lengur á íslenska náttúru miðað við myndina frá þér í s.l. pistli

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.2.2008 kl. 21:23

2 Smámynd: Adda bloggar

sæl rósin mín.

þetta barn er yngsti sonur minn, fæddur 3 des 2007.

Adda bloggar, 20.2.2008 kl. 21:32

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl aftur. Æðislegt krút. Kær kveðja

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.2.2008 kl. 21:38

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Mikið er hann fallegur og mikið yrkir þú fallega.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.2.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl aftur og aftur. Gerðir þú þessar vísur eins og Jórunn skrifar?

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.2.2008 kl. 00:13

6 Smámynd: Adda bloggar

nei, þetta er lag sem stebbi hilmars syngur með sálinni hans jóns míns.

Adda bloggar, 21.2.2008 kl. 12:49

7 Smámynd: Tiger

   En fallegur drengur, til hamingju með nýjasta meðliminn í fjölskyldunni! Vísustúfarnir eiga svo sannarlega við þegar litlir hnoðrar líta dagsins ljós.

Tiger, 21.2.2008 kl. 12:56

8 identicon

En krúttlegur strákur....sendi ykkur bestu kveðjur inn í helgina og hafið þið það sem allra best elskan..knús

Björk töffari (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 16:41

9 Smámynd: Tiger

Hæhæ Adda. Ég ætlaði að taka við þér sem bloggvin en á einhvern hátt eyddi ég slóðinni þinni og get ekki fundið hana aftur. Endilega sendu mér aftur bloggvináttukubbinn svo ég geti addað þér...

Tiger, 22.2.2008 kl. 01:59

10 Smámynd: Adda bloggar

JellyMuffin.com - The place for profile layouts, flash generators, glitter graphics, backgrounds and codes

Adda bloggar, 22.2.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband