2008-01-30
MANNSAL!
Hundruð barna í breskum þrældómi
Mynd: Getty
Rannsóknarblaðamenn á vegum Sunday Telegraph hafa flett ofan af þessu ógnvænlega máli. Var einum blaðamannanna boðin nokkur börn til sölu í Nígeríu. Þar af bauðst honum tveir strákar, þriggja og fimm ára, fyrir rétt rúmar 600 þúsund krónur. Þá bauðst honum tíu mánaða gamalt barn fyrir rétt tæpar 250 þúsund krónur. Unglingstúlkur, sem sumar hverjar voru með barn undir belti, voru til í að selja ófædd börn sín fyrir rúmar 120 þúsund krónur.
Heimilisþrælar frá sjö ára aldri
Alþjóðlegur braskari sem blaðamaður Sunday Telegraph fann í Lagos, segist selja allt upp í 500 börn árlega. Á Bretlandi eru börnin notuð allt frá sjö ára aldri sem heimilisþrælar, þar sem þau vinna allt að átján tíma á dag, við að þrífa, elda og sjá um yngri börn. Auk þess vinna þau á veitingastöðum eða í verslunum. Mörg þeirra eru einnig misnotuð kynferðislega.
Opinberar tölur segja til um að 330 börn hafi verið flutt yfir til Bretlands á síðasta ári. Þar af séu fjórtán börn undir tólf ára aldri. Lögregluyfirvöld telja þær áætlanir aftur á móti einungis sýna fram á brot af starfseminni.
Spilltir embættismenn útvega krökkunum vegabréf
Braskararnir notast við tengslanet við spillta embættismenn til að verða sér úti um vegabréf, sem oft eru með tilbúnum nöfnum fyrir krakkana. Margir þeirra fara með beinu flugi frá Lagos í Nígeríu til Lundúna. Aðrir fara frá löndum í Vestur-Afríku, eins og Ghana eða Benin, til leppsborga, eins og Parísar.
Það er verið að misnota þessi börn beint fyrir framan nefin á okkur. Þessi staða er óásættanleg. Við þurfum að bregðast við um leið og börnin koma inn í landið. Við þurfum að finna þau börn sem verið er að braska með og bjóða þeim vernd sem sleppa frá möngurunum, segir Chris Beddoe, forsvarsmaður bresku samtakanna End Child Prostitution and Trafficking.
Íhaldsmenn á breska þinginu segja ríkisstjórnina hafa brugðist gjörsamlega þegar kemur að þessum málum. Íhaldssöm ríkisstjórn myndi grípa til viðeigandi ráðstafana, sem þróaðar hafa verið síðustu tvö árin, til að halda aftur af þessari illu starfsemi, segir David Davis, talsmaður Íhaldsflokksins í samtali við Sunday Telegraph.
Fyrirhugað er að ríkisstjórn Bretlands kynni í næstu viku áætlun sína um hvernig skuli bregðast við mansali.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég hef bara eitt um þetta mál að segja og það er eftirfarandi: Útrýmum mannsali með öllum þeim ráðum sem til eru.
Magnús Paul Korntop, 2.2.2008 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.