2007-02-11
Skyndihjálparmaður ársins 2006
Jæja þá er það orðið formlegt að prinsinn minn Egill Vagn er valinn skyndihjálparmaður ársins 2006, til hamingju með það elsku drengurinn minn, ég á ekki orð yfir hvað ég og við fjölskyldan þín erum stolt af þérÉg væri ekki að skrifa þessi orð ef þú hefðir ekki verið svona ofsalega duglegur!En stærsta gjöfin mín er sú að fá að eiga þig ástin mín fyrir son, lífgjöfina get ég aldrei þakkað þér ástin mín, nema reynast þér góð móðirOrðunum gleymi ég aldrei sem þú sagðir við mig þegar við hittumst aftur eftir að ég kom heim af FSA"mamma ég fæddist til að bjarga lífi þínu"þessum orðum mun ég aldrei gleyma elsku barnið mitt.
ÉG ELSKA ÞIG ÁSTIN MÍN OG ÞAKKA ÞÉR EN OG AFTUR FYRIR AÐ VERA SVONA DUGLEGUR AÐ BJARGA LÍFI MÍNU.
MAMMA
Athugasemdir
Mikið mátt ú vera stolt mamma. Til hamingju með þetta. Mér skilst líka aað þú hafir verið búin að kenna honum. Hann er hetja.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 11.2.2007 kl. 20:24
Allir landsmenn eru rígmontnir af drengnum þínum. Svo er hann svo hógvær og blíður með þetta allt saman.
Jón Steinar Ragnarsson, 16.2.2007 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.