Rúmlega 4.000 börn í Kína hafa fengið nafnið “Ólympíuleikar”

Sideways

kinabarn.jpgRúmlega fjögur þúsund börnum í Kína hefur verið gefið nafnið “Aoyun” eða Ólympíuleikar, vegna Ólympíuleikanna sem verða í Kína í ágúst.

Upplýsingastofa um persónuskilríki segir í blaðinu Peking Youth Daily að 92% af þeim 4.104 börnum sem beri þetta nafn séu drengir.

Tæplega 680 börn fengu nafnið árið 1992 þegar Peking sótti fyrst um að fá að halda leikana og önnur 553 börn fengu nafnið árið 2001, þegar tilkynnt var að Peking héldi leikana árið 2008.

Löng hefð er fyrir því í Kína að nefna börn eftir atburðum og mörg börn fengu nafnið “Byggjum landið” eða “Verjum Kína”, eftir að Kínverska alþýðulýðveldið var stofnað árið 1949.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Ótrúlegt hvað fólk er fullt af áhrifum af umhverfinu.

Iss mín börn eiga ekki fullt af alnöfnum sko.

knús úr sveitinni.

JEG, 12.6.2008 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband