2008-04-21
Laufey hólm
Laufey Hólm Sigurgarðsdóttir Minning Fædd 21. apríl 1911 Dáin 2. maí 1988
Laufey Hólm Sigurgarðsdóttir Minning Fædd 21. apríl 1911 Dáin 2. maí 1988 Hversu sælt er ekki að geta litið yfir farna ævislóð með hreinu hjarta, þar sem við blasir farsælt starf og afrakstur heillar mannsævi í þágugóðs? Hversu hugljúf er ekki minningin um hana, sem sáði frækornum mildi, gæsku, gleði, heiðarleika og hreinskilni í hjörtun? Slíkt verðurekki til auðæfa metið á veraldlega vísu, en þannig er minningin um ömmu mína, Laufeyju Hólm Sigur garðsdóttur, í hennar farsæla lífi.
Einar Benediktsson segir eftirminnilega í einu ljóða sinna: "Skammvinna ævi þú verst í vök þitt verðmæti gegnum lífið er fórnin. En til þess veit eilífðin alein rök." Til þessara orða verður mér nú hugsað í sambandi við minningu ömmu minnar, því í sannleika er hægt að segja: Hennar verðmæti gegnum lífið var fórnin, fórnin í þágu barna, eiginmanns, barnabarna, systkina og foreldra. Þó veit ég að hún leit ekki þannig á að hún fórnaði sér í þágu annarra, heldur þótti henni ekkert sjálfsagðara en að gera öðrum gott og að láta gott af sér leiða.
Laufey fæddist á Eysteinseyri við Tálknafjörð 21. apríl 1911. Foreldrar hennar voru Viktoría Bjarnadóttir og Sigurgarður Sturluson. Sigur garður var sjálfmenntaður maður, í mörgu á undan sinni samtíð, og stundaði m.a. barnakennslu og verslunarstörf í Tálknafirði. Hann lést um aldur fram, og brá Viktoría þá búi. Eftir skamma dvöl á Bíldudal flutti hún til Reykjavíkur með börnin, en þau voru Gunnar, Bjarney, Guðrún, Laufey, Bjarni, Aðalheiður, Bergþóra og Ásgeir. Fjögur systkinanna hafanú kvatt þennan heim. Eftir lifa Gunnar, Bjarney, Aðalheiður og Bjarni.
Þegar Viktoría flutti til Reykjavíkur voru flest börnin vaxin úr grasi og fóru þau fljótlega að heiman til ýmissa starfa, eins og algengt var á þeim tíma, því mun færri tækifæri gáfust þá til menntunar en nú. Systkinin héldu alltaf miklu sambandi við móður sína, en hún var miðdepill fjölskyldunnar. Laufey, amma mín, fór til starfa að Úlfljótsvatni í Grafningi til Magnúsar Jónssonar, lagaprófessors, og konu hans, Harriet Bonnes en, og þar kynntist hún tilvonandi manni sínum, Vagni E. Jónssyni, síðar hæstaréttarlögmanni, sem þá var við nám í lagadeild Háskóla Ís lands. Þeim varð tveggja barna auðið, Estherar Brittu, kennara, f. 10. ágúst 1936, og Atla, lögmanns, f. 18. júní 1946. Vagn var virtur og vinsæll lögmaður á sinni tíð og rak um árabil umsvifamikla lögmannsstofu og fasteignasölu í Reykjavík.
Heimili Vagns og Laufeyjar á Laugateig í Reykjavík hlýtur að vera öllum minnisstætt sem því kynntust, því þar ríkti sérstaklega góður andi, en straumar mennta og menningar lágu þar í loftinu. Amma hélt stórt heimili; um áratugaskeið bjó tengdamóðir hennar í heimilinu, auk þesssem foreldrar mínir bjuggu þar fyrstu búskaparár sín og þar var fyrsta heimili okkar eldri bræðranna. Það liggur í augum uppi að erfitt hefur oft verið að sigla báruna í því hlutverki sem húsmóðurstarfið út heimti, en alltaf tókst henni að sigrast á erfiðleikum með einstakri bjartsýni og með því að koma alltaf framaf hreinskilni og góðmennsku. Sérstaklega skal til þess tekið að samband hennar við tengdamóðurina, Harriet Jónsson f. Bonnesen, var alltaf gott, en gamla konan var orðin háöldruð, 89 ára, þegar hún lést, eftir að hafa deilt heimili með syni sínum og tengdadóttur í rúm 36 ár.
Mér finnst ekki langt síðan ég sat við hliðina á ömmu þegar hún kenndi mér að lesa og draga til stafs. Sagðihún mér þá stundum frá lífinu á æskuheimili hennar í Tálknafirði, þegar þau systkinin lærðu hjá föður sínum, en hann hélt skóla að vetrinum í gamla bænum. Ég er þeirrarskoðunar að hjá ömmu hafi sameinast margir bestu kostir íslenskrarmenningar þeirrar kynslóðar sem sjálfmenntuð var að mestu, og alin upp við heilbrigðar lífsskoðanir í faðmi íslenskrar náttúru. Þar var hreinskilnin og heiðarleikinn efst á blaði, ásamt trú á framtíð lands og þjóðar. Þó var glettnin og kímnigáfan aldrei langt undan. Í hugann koma ótal myndir. Ég sé góðlega andlitið hennar, sem þerraði tár af vanga lítils drengs, en hönd hennar var ætíð nálæg til hjálpar, og alltaf tókst henni að snúa huganum þannig að erfiðleikar gleymdust og allt varð aftur gott.
Sem dæmi um óbilandi kjark og trú ömmu minnar á lífið má nefna, að árið 1966 fékk hún alvarlegan augnsjúkdóm. Gekkst hún undir uppskurð á hornhimnu, sem tókst mjögvel, og aldrei heyrðist hún kvarta yfir þessu mótlæti, en sjúkdómurinn hafði varanleg áhrif á sjón hennar til hins verra.
Ekki er hægt að minnast ömmu minnar án þess að listrænir hæfileikar hennar komi í hugann. Hún hafði frá blautu barnsbeini alist upp við íslenskan heimilisiðnað, og hafði hún alla sína daga mjög gaman af hannyrðum. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt bar það vottum listrænt handbragð og smekkvísi. Auk þess saumaði hún út, vann að gerð veggteppa, smáhluta og ýmislegs annars á sviði hannyrða, en amma mín var ótrúlega fljót að tileinka sér nýjungar og læra ný vinnubrögð.
Þó hygg ég að mörgum hafi komið á óvart þegar hún, tæplega sextug að aldri, hóf nám í listmálun á námskeiði hjá Hring Jóhannessyni listmálara. Hún tók listsköpunina alvarlega, og lagði mikinn metnað í öll sín verk. Þrátt fyrir það að hún væri þetta fullorðin tókst henni að skapa mörg listaverk sem prýddu og prýða heimili hennar og ættingja. Er það bjargföst sannfæring mín að hefði hún átt þess kost að stunda listnám í æsku sinni, eins og nú er algengt, þá hefði hún ekki verið óþekktur listamaður í dag. slíkt varþó nær óhugsandi hvað konur varðaði á fyrstu áratugum þessarar aldar.
Amma varð fyrir þeirri þungbæru reynslu að missa eiginmann sinn skyndilega árið 1976. Hún tók þvísem að höndum bar með æðruleysi en sömu bjartsýninni og einkenndi alla hennar skaphöfn. Hún hafði oft á orði að best væri að líta björtum augum á tilveruna því mótlæti minnkaði ekki við að velta sér uppúr vandræðum. Er það hverju orði sannara, en allt samband afa míns og ömmu hafði yfir sér blæ virðingar, festu, trúnaðartrausts og gagnkvæmrar væntumþykju. Þau sameinuðust í gleðinni yfir litlum sem stórum sigrum barna sinna og barnabarna, og gleði þeirra var aldrei meiri en á jólum eða öðrum stórhátíðum, þegar fjölskyldan sameinaðist. Get ég því í hreinskilni sagt, að bernsku minnar jól séu óforgengileg ur gimsteinn í minningunni, svo björt og fögur voru þau. Hvers virði er ekki slíkt veganesti?
Amma hafði alltaf mikið sambandvið systur sínar, og reyndust þær mér allar vel þó ólíkar væru þær. Tvær systur hennar hafa nú kvatt þennan heim, þær Bergþóra og Guðrún, og má nærri geta hvort ekkivar nálægt henni höggvið við fráfall þeirra, sem hún hafði nær daglegt samband við. Allt þetta bar hún þó með þeim styrk sem henni var gefinn, í meira mæli en mörgum öðrum. Þannig hefði hún líka viljað að við, afkomendur hennar, ættingjar og vinir tækjum fréttunum um hennar eigið andlát. Hún vildi alltaf horfa með bjartsýni fram á veginn, og það hefði hún viljað að við gerðum nú, þótt "byrgi mér sýn mín eigin tár," eins og Einar Benediktsson komstað orði.
Heimurinn er hverfull, lífið og tíminn heldur áfram. Gamlir stofnar falla, en nýir vaxa úr grasi. Við, sem þekktum hana, vitum að nú hafa orðið þáttaskil. Minningin um hana, sem var okkur öllum svo kær, á þó eflaust eftir að verma hjörtun um ókomin ár, og þau frækorn sem hún sáði í huga okkar og anda, munu halda áfram að dafna. Það ætti að vera okkur nokkur huggun á þessari erfiðu stundu, en minningu hennar heiðrum við best með því að gera einkunnarorð hennar; bjartsýni og gleði, að einkenni í lífi okkar. Ég veit að við geymum minningu hennar í hjartanu, og dýpsta þakklæti og virðing fylgir henni yfir landamæri lífs og dauða.
Egill Héðinn Bragason
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Þetta hefur greinilega verið mikil og stór kona hún amma þín! Það er alltaf mikill missir af ömmum okkar og öfum. Ég er einmitt svo mikið fátækur á þessa vegu, búinn að missa báða afa mína og líka báðar ömmur mínar. En það er þó gott til þess að vita að þetta góða fólk er þarna hinu megin að gæta okkar og það tekur sannarlega á móti ástvinum okkar sem af einhverjum ástæðum fer löngu fyrir sinn tíma... Knús á þig ljúfan!
Tiger, 22.4.2008 kl. 14:42
takk fyrir fallegt svar
Adda bloggar, 22.4.2008 kl. 15:59
Ömmur eru yndislegar - ég var svo heppinn að eiga tvær stórkostlegar ömmur, sem elskuðu mann svo mikið og manni leið svo vel hjá. Önnur dó 1992 og hin dó núna 2008. Þær gáfu mér mikið og ég sé að amma þín hefur gefið þér mikið.
Nafnið er líka fallegt, og auðvitað ert þú líka fallegur einstaklingur. 21. apríl hefur sérstaka meiningu í mínum huga líka ... en það er önnur saga.
Knús og kveðjur til þín, dúlla.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 17:23
Ég samhryggist innilega. Ég man því miður ekkert eftir móðurömmu minni.
Þorsteinn Briem, 22.4.2008 kl. 19:29
Adda mín, mikið er þetta fallegt og vel skrifað. Amma þún hefur verið sérstök og mikð var hún dugleg að fara að mála um sextugt. Það var nefnilega öðruvísi þegar hún var sextug hedlur en í dag. Hún hefur verið á undan sinni samtíð. Að hún skyldi búa í sátt og samlindi við tengdamóður sína í öll þessi ár sýnir að hún hefur verið sérstök og kannski þær báðar og það sem hún sagði að það bætti ekkert að vera að velta sér upp úr erfiðleikunum. það sýnir þroska. Takk fyrir þessa góðu grein.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 22.4.2008 kl. 19:33
Fallegt og vel skrifað um yndislega ömmu.
Gleðilegt sumar og takk fyrir bloggveturinn
Margrét St Hafsteinsdóttir, 24.4.2008 kl. 13:54
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Kæri Adda
Gleðilegt sumar
Þakka mjög góð kynni í vetur í bloggheimum.
Falleg minningargrein um ömmu þína.
Ég vona að þér og Kristófer sé að batna.
Drottinn blessi þig og fjölskylduna.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.4.2008 kl. 20:57
Fallega skrifað um hanna ömmu þína , ég veit hva þú ert að fara átti svoa ömmu líka . Gleðilegt sumar dúlla .
Knúss og klemm
Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 27.4.2008 kl. 07:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.