2008-03-12
frettir,og fleira...
við yngri börnin erum stödd sem stendur á akureyri, og höfum það gott.skúli minn var að hitta lækni til að láta taka rörin úr eyrunum sínum, og stóð sig vel.kristófer er að fara til læknis í dag, að láta ath í sér magakútinn.hann hefur ekkert minkað ælurnar og af því hann er þetta stór, þá ætti þetta að vera orðið betra.en eg er viss um að þeta er bakflæði eða mjög þröngt magaop.sama hvað það er þá er loksins eitthvað að gerast í hans málum.
læt vita hvernig hefur gengið í dag. ykkar adda laufey
Hot Comments
Athugasemdir
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Elsku Adda mín
Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með strákunum þínum og þér.
Strákarnir eru lánsamir að eiga mömmu sem ber umhyggju fyrir þeim og er ákveðin í að fá alla þá hjálp sem þeir eiga rétt á.
Guð blessi ykkur og varðveiti
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.3.2008 kl. 13:06
Sæl Adda mín. Vonandi gengur allt vel hjá þér með strákan og vonandi segir þú okkur bara góðar fréttir af þeim næst. Knús á þig í nóttina.
Tiger, 13.3.2008 kl. 02:29
Gangi ykkur vel elsku Adda mín og vona að öllum batni,svo að þið komist aftur heim í sveitina ykkar...knús
Björk töffari (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 23:22
Vonandi hefur allt gengið að óskum og að börnin séu við góða heilsu.
Magnús Paul Korntop, 16.3.2008 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.