Skúli þór mömmuprins
hæhæ
jæja veðrið var yndislegt í gær.en í staðinn fyrir að fara út að ganga, fór ég í sólbað á pallainum úti,sem var svakalega notalegt.ég er búinn að ákveða að vera hjá mömmu & pabba í vetur(foreldrum sigga)mér finnst öruggt að vera nálægt mömmu þegar þetta er svona.enda ætlar hún að vera hjá mér þegar ég fæði ásamt sigga.það er æðislegt að eiga svona góða foreldra, og örugglega sjaldgæft að svona sterkt samband sé á milli tengdamóður og tengdadóttur!ég hef aldrei notað þessi orð tengdaforeldrarþekki ekki hugtakið hehe.ég var 15 ára þegar ég fór að vera með syni þeirra, og mjög fljótlega eða um 16 ára fór ég að kalla þau M & P .ef fleiri gætu myndað svona gott samabnd þá væru heimurinn betri.en að góðu fréttunum, lyfið er að virka, ásamt því að vera eins og prinsessa, svo ég ætla að halda þessum góðu hlutum áfram.en munið að elska hvort annað og njóta hvers dags elskurnar, lífi er svo stutt.
kv frá öddu.
ps ég var að setja nokkrar nýjar myndir inn ........
ásdís magnea á hestbaki......
egill vagn mömmuprins á hestbaki.
Athugasemdir
Þú átt gott að eiga svona góða tengdaforeldra og ég er viss um að þau eigi gott að eiga svona góða dóttur.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.8.2007 kl. 13:02
Bið að heilsa mömmu þinni og pabba!
Hvað er annars að frétta af þér og ykkur ... og hvenær áttu að eiga fjórða barnið? :)
MbK, Magga
Magga (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 18:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.