2007-06-06
fréttir af okkur
hér hefur gengið ofsalega vel, sæmilegt veður.það er hjóladagur hjá skúla mínum á morgun,hann elskar að hjóla þessi elska.ég varð fyrir smá óhappi í dag, skall á tröppurnar, beint á hausinn hehe klaufinn ég.ég fór á fsa til að ath með kúlukrúttið mitt, og allt var í þessu fína lagi.hjartað sló og allt í toppstandi, ég fékk vægan heilahristing og mun því taka því rólegaallavega reyna það haha.bestu kv í bili adda bumbulína.
ps.hvernig finnst ykkur nafnið NÁTTSÓL?
ps.hvernig finnst ykkur nafnið NÁTTSÓL?
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Náttsól hljómar vel
Ólafur fannberg, 6.6.2007 kl. 09:00
Náttsól er dásamlegt nafn . Gott að ekki fór verr, elskan mín. Við vefjum þig bara inn í bómull, bloggvinirnir, og hugsum hlýlega til þín. Hvíldu þig vel. Hvenær er von á Náttsólinni? Plís, segðu 12. ágúst!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 6.6.2007 kl. 15:29
ég er sett 5 des með krílið
Adda bloggar, 6.6.2007 kl. 15:46
Æ Æ Adda mín. Gott að bumbubúinn meiddist ekki. Bestu kveðjur úr rigningunni fyrir sunnan
Jórunn Sigurbergsdóttir , 6.6.2007 kl. 16:04
Farðu vel með þig dúlla og Náttsól er flott knús og klemm
Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 7.6.2007 kl. 09:18
Muna
Heiða B. Heiðars, 8.6.2007 kl. 14:48
...jæks! Lætin í þessum enter-takka
En það sem ég ætlaði að segja var "Muna að njóta þessa bumbutíma. Eins og maður getur orðið þreyttur og leiður þá er þetta samt æðislegur tími.
Og Náttsól.... á maður að segja satt eða plata?
Heiða B. Heiðars, 8.6.2007 kl. 14:50
heiða min segja bara satt
Adda bloggar, 8.6.2007 kl. 15:45
Mér finnst Náttsól ekki fínt nafn á manneskju.. Sorry
Heiða B. Heiðars, 8.6.2007 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.