2007-03-12
Komin heim í heiðardalinn =)
jæja þá er maður komin heim, í sveitina.ég var ekkert smá rugluð þegar ég var að keyra heim hehe, ruglaðist á vegum og var komin langleiðina til Húsavíkur, ekki svo leiðinlegt samt að skoða nýjar slóðir.Ég átti verulega góðir stundir um helgina, hjá foreldrum og maka, það var reyndar pínu erfitt að fara heim, en þetta er bara um stundarsakir sem ég er grasekkja.Veðrið var nú ekki uppi á marga fiska, sífeld rigning.Svo var maður netlaus og fleira, ágætt að fá hvíld frá tölvunni.Nú er bara að vona að vikan verði góð, og tíminn fljótur að líða.æi ég ætlaði nú ekki að væla um það, en mikið sakna ég bóndans.en ég reyni að hugsa um að í staðinn verð ég sjálfstæðari.
knús og klemm frá öddu litlu
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Fjarvistir efla víst ástina. Ég er alveg að verða skotin í fyrrverandi eiginmanni aftur eftir að hafa verið skilin við hann í rúm 20 ár!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.3.2007 kl. 18:15
knús
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.3.2007 kl. 19:19
Ég hef ekki komið til Húsavíkur í mörg ár en þar á ég fullt af frændfólki.
Svava frá Strandbergi , 12.3.2007 kl. 22:36
Já, það er betra að taka réttan afleggjara. Samúð mina færðu á meðan bóndinn er í burtu. Knús og klemm
Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.3.2007 kl. 23:56
Velkominn heim dúlla og reyndu að gera eithvað skemtilegt meðan þú býður eftir bónadnum knús og klemm
Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 13.3.2007 kl. 21:20
Knúsí knús
Júlíus Garðar Júlíusson, 14.3.2007 kl. 08:55
Velkomin heim snúlla og ég veit hvernig þér líður í sambandi við bóndann ég er ekki búin að sjá minn í 2 vikur
Knús knús
Maggý Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.