ÓL í Peking: Hvatt til góðrar hegðunar; drykkjulæti og fjárhættuspil harðbönnuð

 

W00t

peking.jpgStjórnvöld í Peking hafa beint þeim tilmælum til áhorfenda sem munu sækja Ólympíuleikana í borginni 8.-24. ágúst að skilja áróðursborða og -spjöld eftir heima.

Líka þó menn séu ósammála stefnu stjórnvalda í stjórnmálum, trúmálum og öðrum málum.

Yfirvöld í Peking hafa lengi verið áhyggjufull vegna eigin þegna sem þau óttast að muni taka mesta glansinn af leikunum með leiðinda hegðun.

Í dag voru því gefnar út reglur fyrir áhorfendur og herferð hleypt af stokkunum undir slagorðinu “Góð hegðun - góðir leikar”.

Reglurnar í Peking eru nokkurn veginn þær sömu og voru á Ólympíuleikunum í Aþenu og Sydney, áróðursspjöld mega ekki vera stærri en tveir metrar á lengd og einn metri á breidd, en helst vilja stjórnvöld eki sjá nein áróðursspjöld í borginni, hvorki lítil né stór.

“Við biðjum fólk að vera ekki með spjöld af neinu tagi á leikunum, ekki síst til að gera öllum keppendum jafnt undir höfði,” segir Huang Keying, einn af skipuleggjendum leikanna.
“Meira að segja spjöld með áletruninni “Áfram Kína” væru óréttlát gagnvart keppendum annarra landa.”

Inni á Ólympíusvæðinu þarf sérstakt leyfi yfirvalda til að vera með spjöld tengd trúarbrögðum, pólitík, mannréttindum eða dýravernd. Þá eru fánar landa sem ekki eiga fulltrúa á leikunum bannaðir, en það mun vera til að koma í veg fyrir að fáni Tævan blakti nokkurstaðar. Fáni Tævan er harðbannaður í Kína.

“Fjárhættuspil og drykkjulæti eru líka stranglega bönnuð, en við munum leyfa regnhlífar sem voru reyndar bannaðar á Ólympíuleikunum í Aþenu,” sagði Huang.
“Fólk í mörgum löndum sækir í sólböð en hér reynum við að forðast sólina. Við munum leyfa regnhlífar, en ekki að þær verði spenntar upp á áhorfendapöllum.”
Regnhlífar eru algeng sjón í Peking í ágúst þar sem þær eru notaðar sem sólhlífar og vegna úrhellis hitaskúra.

Annað sem er frábrugðið reglunum í Aþenu er að fólk má ekki borga stórar fjárhæðir með mynt, heldur verður að nota seðla.

kina-mistok.jpgUndirbúningur fyrir leikana stendur sem hæst og gárungarnir senda tölvupósta á milli með myndum á borð við þessa frá Peking, þar sem enskan hefur örlítið vafist fyrir heimamönnum.

Myndirnar má sjá inn á www.engrish.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Bara að kvitta fyrir komuna dúlla

Knúss og klemm Heiða

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 15.7.2008 kl. 06:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband