Umdeilt myndband með Madonnu og Britney í bígerð

Whistling

76628740.jpgBritney Spears er að reyna að koma söngferli sínum aftur á rétt ról, og í þeim tilgangi mun hún koma fram á tónleikaferðalaginu sem Madonna er að leggja upp í og ber nafnið “Sticky & Sweet”.

Britney mun þó ekki koma fram í eigin persónu heldur mun hún taka upp myndband sem verður svo sýnt á risaskjá á tónleikum Madonnu.

Madonna hefur sjálf staðfest fréttirnar og nú hefur breska slúðurblaðið The Sun komist að því hvernig myndbandið verður.

Britney og Madonna munu dansa saman í atriði sem hefur verið lýst sem “klámfengnu,” þar sem þær koma fyrst fram í múmíubúning, sem svo verður reyttur af þeim uns þær standa eftir á G-strengjum úr leðri og háum stígvélum.81051780.jpg

“Þetta verður algjörlega klassísk Madonnu-sýning,” er haft eftir ónefndum uppljóstrara.

“Líklega meira kynæsandi en nokkuð sem hún hefur áður gert. Það verður ekkert dregið undan og þetta kemur til með að vera mjög umdeilt.”

“Það verður vafið utan af Britney og Madonnu eins og múmíum þangað til þær verða næstum því naktar fyrir utan pínulitlar nærbuxur og há stígvél. Svo munu þær dansa þétt saman og þrýsta líkömum sínum upp að hvor annarri.

“Það mun verða rifist um það hvort þetta sé kynæsandi, of langt gengið, eða bæði.

Tónleikaferðalagið mun hefjast þann 23. ágúst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband