Yndisleg sál, kölluð á braut...........

Herdís Hauksdóttir
 
fæddist á Akureyri 11. september 1969. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 6 nóvember.
 Ég er á langferð um lífsins haf
og löngum breytinga kenni.
Mér stefnu frelsarinn góður gaf.
Ég glaður fer eftir henni.
Mig ber að dýrðlegum, ljósum löndum.
Þar lífsins tré gróa' á fögrum ströndum.
Við sumaryl og sólardýrð.

Og stundum sigli ég blíðan byr
og bræðra samfylgd þá hlýt ég
og kjölfars hinna er fóru fyrr
án fyrirhafnar þá nýt ég.
Í sólarljósi er særinn fríður
og sérhver dagurinn óðum líður,
er siglt er fyrir fullum byr.

En stundum aftur ég aleinn má,
í ofsarokinu berjast.
Þá skellur niðadimm nóttin á,
svo naumast hægt er að verjast.
Ég greini ei vita né landið lengur,
en ljúfur Jesús á öldum gengur,
um borð til mín í tæka tíð.

Mitt skip er lítið, en lögur stór
og leynir þúsundum skerja.
En granda skal hvorki sker né sjór
því skipi, er Jesús má verja.
Hans vald er sama sem var það áður,
því valdi' er særinn og stormur háður.
Hann býður: Verði blíðalogn!

Þá hinsti garðurinn úti er,
ég eigi lönd fyrir stöfnum.
Og eftir sólfáðum sæ mig ber,
að sælum blælygnum höfnum.
Og ótal klukkur ég heyri hringja.
Og hersing ljósengla Drottins syngja.
Velkominn hingað heim til vor.

Lát akker falla ! Ég er í höfn.
Ég er með frelsara mínum.
Far vel þú æðandi dimma dröfn!
Vor Drottinn bregst eigi sínum.
Á meðan akker í æginn falla.
Ég alla vinina heyri kalla,
sem fyrri urðu hingað heim.

H. A. Tandberg, major - Vald. V. Snævarr
 
 
ég vil votta foreldrum, manni, systkinum mínum samúðarkveðjum.eins öðrum ættingjum og vinum.megi guð vera með ykkur í dag.
 
 
Ó, faðir, gjör mig sigursálm,

eitt signað trúarlag,

sem afli blæs í brotinn hálm

og breytir nótt í dag.

Edwards / Matthías Jochumsson

Jónas Tómasson

Heart 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Samúðarkveðjur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.11.2007 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband