mán. 29.9.2008
Lambahjörtu.........
fyllt lambahjörtu sem koma verulega á óvart | ||
| ||
| takið hjörtun og þvoið troðið steinseljunni inní hólfin. piprið og piprið og piprið, piprið alveg rosalega. setjið pott á hlóðir með hæfilega söltu vatni og hitið að suðu þvínæst er hituð panna og oliu skelt á hana, hjörtun eru snöggsteikt og velt á pönnunni og síðan sett útí sjóðandi vatnið látið sjóða í 5 til 6 tíma!!! já ég er ekki að grínast. takið uppúr og sneiðið í þunnar sneiðar búið til góða sósu með . takk fyrir. |
lau. 13.9.2008
Kókosbollujummí
Kókosbollujummí
1 stór poki Nóakropp
1 botn púðursykurmarens
3-4 kókosbollur
2 öskjur jarðaber (bláber eða annað) ég notaði eina öskju af jarðaberjum það var nóg
2 pelar rjómi
Aðferð:
Setjið botnfylli af nóakroppi í skál eða form. Þeytið rjómann og hyljið nóakroppið með helmingnum. Myljið marensbotninn og setjið ofan á. Kókosbollurnar koma næst. Dreifið úr þeim með gaffli. Skolið jarðaberin og skerið í litla bita og dreifið yfir. Setjið að lokum hinn helminginn af þeytta rjómanum yfir allt saman. Geymið í kæli í nokkrar klst. áður en borið er fram. Skreytið eftir smekk, t.d. með kiwi, nóakroppi eða berjum.
Rosalega gott og stór skammtur!!!
Dásamlegt
þeyta ½ l af rjóma set mulinn marensin í botninn í form set svo smá af kókosbollunum ca 2 og rjóma svo jarðaber og bláber svo aftur rjóma og 2 kókosbollur og jarðaber og bláber. Kaupi kassa af jarðaberjum og bláberjum og skipti þessu svo niður jammi gott.
Kókosbolluterta
Rjóma/kókosbollublandan er svona:
1/2 líter þeyttur rjómi
1 stappaður banani blandað saman við rjómann
4 kókosbollur settar útí
1 stk gulur svampbotn neðst (annað hvort bakar hann sjálf eða kaupir tilbúinn útí búð)
C.a helmingur af rjóma/kókosbollublöndunni sett ofan á svampbotninn
Þar ofan á fer einn marengsbotn (getur notað hvernig marengs sem er, rosa gott að hafa kornflexmarengs)
Ofan á marengsbotninn fer svo restin af rjóma/kókosbollublöndunni
Ofan á allt saman seturðu svo jarðaber, bláber, vínber og svo nóa kropp eða súkkulaði rúsínur.
lau. 13.9.2008
ógeðslega góð skinkuhorn!!!!!!!!!!!!
Skinkuhorn
1/2 pk ger
1 dl heitt vatn
1/2 dl mjólk
4 dl hveiti
1/4 tsk. salt
1 tsk. sykur
3 msk. hveitiklíð
50 g smjörlíki
1 askja smurostur að eigin vali
1 bréf skinka
Þurrefnum blandað saman. Lint smjörlíki mulið saman við. Mjólk og vatni blandað saman og sett út í. Hnoðað og látið hefast í 30 mín. Flatt út í tvo kringlótta pizzubotna. Hverjum skipt í átta horn. Skinkan skorin í bita og hrært saman við ostinn. Ein skeið af ostablöndu sett á hvert horn og því rúllað upp (byrjað á breiða endanum). Bakað við 200°- 225°C þar til hornin eru orðin falleg á litinn.
lau. 13.9.2008
Kókoskúlur frá Svíaríki.......
100 gr smjör
1 dl sykur
1 msk kakó
3 dl haframjöl
smá kaffi
kúlunum er velt uppúr kókosmjöli og sykri.
Kókoskúlur 2:
2-3 msk kakó
2 msk smjörvi
150 gr sykur
200gr haframjöl
3 msk heitt kaffi
Kúlunum er velt uppúr kókosmjöli og sykri.
Kókoskúlur úr ostalyst bókinni.
40 gr smjör
½ dl sykur
½ msk vanillusykur
1 ½ dl haframjöl
100 gr suðusúkkulaði
1 msk mjólk
kókosmjöl til að velta uppúr.
kostur---ofsalega gott---ókostur------þú fitnar hrattttttttttttt
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 13.9.2008
kókosgaldrakúlur
Kókosgaldrakúlur.
100 gr smjör/smjörlíki, 3 dl haframjöl, 1 1/2 dl kókosmjöl, 1 1/2 dl flórsykur, 1 tsk vanillusykur eða dropar,
2 msk kakó, 1 msk vatn.
Blandaðu öllu saman í skál, sigtaðu flórsykurinn og kakóið.
Búðu til kúlur og veltu þeim upp úr kókosmjöli. Kælið.
Svo segi ég verði ykkur að góðu!!
lau. 6.9.2008
Vöfflur án eggja!
Vöfflur án eggja.
2 dl hveiti eða heilhveiti
1 msk sykur
1 tsk lyftiduft
2 tsk vanillusykur
1/2 tsk kardemomma (ef vill)
1 1/2 - 2 dl mjólk eða vatn.
1 msk brætt smjörlíki eða matarolía.
* bræðið smjörið við vægann hita.
* blandið þurrefnum saman.
* hrærið 1 1/2 dl af mjólk eða vatni saman við ásamt bræddu smjörlíki eða matarolíu.
* látið deigið bíða um stund og bætið mjólk/vatn í ef vill. Degið á að vera fremur þykkt.
* Bakið degið, berið fita á járnið ef þörf krefur.
fim. 4.9.2008
Ofnbökuð lúða........
þegar ég var smástelpa þá vissi ég ekki um betri mat en lúðu...........
Ofnbökuð lúða
- Lúða
- Sítrónupipar (ekki með hvítlauk)
- Aspas/avókadó og tómatar
Lúðan sett í eldfast mót og sítónupipar stráð yfir. Annaðhvort er bara hægt að hafa þetta svona eða setja líka eitthvað grænmeti útí. skiptir ekki máli hvað það er en allavega er mjög gott að setja aspas og tómata eða avókadó ofaná fiskinn og þá er mjög gott að búa til hollandaise sósu og hella henni yfir fiskinn. Álpappír settur yfir og bakað í ofni. Borið fram með salati og kartöflum eða hrísgrjónum.
Lúðu piparsteik
Hráefni
- 1.0 kg lúða
- 1.0 peli rjómi
- 2.0 stk laukur Skornir í sneiðar
- 1.0 box sveppir saxaðir
- Badia Lousiana cajun krydd
Leiðbeiningar
Lúðunni er vellt upp úr kryddinu og hún brúnuð á pönnu. Þá er lauknum og sveppunum bætt útí og steikt áfram í 1 mín. Næst er rjómanum bætt útí og allt látið malla þar til lúðan er tilbúin. Gott er að bera sýrðan rjóma og bakaðar kartöflur fram með piparsteikinni.
þri. 2.9.2008
Vöfflur--------gjörið svo vel....
Þetta eru ca 15 vöfflur Rosa góðar og þægilegar.
- 100 gr smjörlíki brætt
- 75 gr sykur
- 2 egg
- 250 gr hveiti
- 3 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 1 tappi vanilludropar
- Mjólk eftir þörfum
Þurrefnin sett fyrst,síðan allt hitt hrært vel saman. Til að gera vöfflurnar extra fínar er gott að þeyta eggjahvíturnar sér og blanda þeim varlega við deigið alveg síðast.
Bakist í vöfflujárni.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 1.9.2008